Góð vörn þegar þú sefur.
Veitir vörn gegn bitvargi t.d. erlendis, í svefnherbergjum, hótelherbergjum eða í ferðavögnum.
Passar í hefðbundna innstungu. Ein fylling fylgir með tækinu en hægt að kaupa auka fyllingar.
Innihald: Prallethrin: 0.87% w/w 0.87g/100g. Efnið Prallethrin er mjög algengt í fæliefnum gegn Mosqító flugum og lúsmý. Efnið er sambærilegt efninu pyrethrin, sem unnið er úr blómum Chrysanthemum plöntunnar. Ekki er ráðlegt að nota efnið nálægt fiskabúrum.
Notkun: Setið fyllinguna í tækið og stingið því í samband við hefðbundna innstungu tveimur tímum fyrir svefn. Ekki er mælt með því að nota tækið lengur en 10-12 klst. á hverjum degi.
Magn: 45 ml. Fyllingin í tækinu dugar í u.þ.b. 30 - 45 nætur miðað við 10-12 klst notkun á dag.
Pyramid © eru hágæðavörur sem framleiddar eru í Skotlandi. Hvergi er meira um lúsmýs (midges) en í skosku hálöndunum. Skotar vita því allt um hvernig á að verjast lúsmýi með árangursríkum hætti.