Söluskilmálar
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk nema matvara sem ber 11% vsk, en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram.
Póstverslun.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Greiðslur
Greitt er fyrir vörur í versluninni með kreditkortum. Ef valin er bankainnlögn í stað kreditkorts við kaup skal leggja greiðslu fyrir vöru inn á reikning nr. 0370-26-450720, Litlakelda ehf., kt. 450719-0800. Verslunin áskilur sér rétt til að senda vöru ekki í póst fyrr en innlögn hefur borist. Enginn greiðslufrestur er veittur við slíka innlögn greiðslu nema sérstaklega sé um það samið og er gjalddagi og einddagi greiðslu við sendingu vörunnar til viðskiptavinar.
Skilaréttur
Það er 14 daga skilaréttur á vörum sem keyptar eru hjá okkur. Varan þarf að vera ónotuð, í lagi og í sínum upprunalegu umbúðum. Er vara er innsigluð skal innsiglið vera órofið. Við skil á vöru er miðað við það verð sem viðskiptavinur keypti hana á, nema varan sé á útsölu þegar henni er skipt, en þá gildir útsöluverð. Flutnings- eða póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað eða við endurgreiðum vöruna ef óskað er eftir því. Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga, nr. 46/2000 auk laga um neytendakaup.
Mistök í sendingu vara
Við hjá Póstverslun.is leggjum metnað okkar í að veita frábæra þjónustu. Ef upp koma mistök við sendingu vara, röng vara er send, hún er ekki í réttu magni eða ekki í samræmi við væntingar kaupanda, vinsamlega hafið samband við okkur í postverslun@postverslun.is eða í síma 867-7342 og við munum að sjálfsögðu gera það sem í okkar valdi stendur til að koma til móts við kaupanda.
Lög og varnarþing
Um viðskipti sem eiga sér á vefversluninni Póstverslun.is gilda skilmálar þessir og íslensk lög. Rísi mál vegna viðskiptanna skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.
Um okkur
Verslunin Póstverslun.is er í eigu Litlukeldu ehf., kt. 450719-0800, Grandavegur 42G, 107 Reykjavík. Síminn er 8677342 en best er að nota netfangið postverslun@postverslun.is til að hafa samband.