Afhendingarskilmálar
Allar pantanir eru afgreiddar samdægur eða næsta virka dag eftir pöntun ef nokkur kostur er. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum, í póstbox eða á næsta pósthús.
Sendingakostnaður er skv. gjaldskrá Íslandspósts á hverjum tíma og fer eftir þeirri sendingarleið sem valin er við kaupin.
Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Póstverslun.is ber samkvæmt þessu ekki ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Póstverslun.is til viðkomandi hafið þá endilega samband og Póstverslun.is mun þrátt fyrir framangreint reyna að koma til móts við kaupanda vörunnar, t.d. með annarri sendingu eða nýrri vöru fyrir þá skemmdu.