Tee tree ilmkjarnaolía hefur um langt skeið verið talin vörn gegn ýmsum skordýrum. Hún er unnin úr laufum jurtarinnar Melaleuca alternifolia, sem vex í Queensland og New South Wales, í Ástralíu.
Tee tree olía er mikið notuð hérlendis til að forðast lús í grunnskólum, en margir telja að hún sé einnig góð vörn gegn bitvargi eins og mý, lúsmý og moskítóflugum. Hér að neðan er hlekkur á leiðir til að búa til náttúrulega flugnafælu m.a. úr Tee Tree olíu og fleiri sambærilegum olíum.
https://www.leaf.tv/articles/tea-tree-bug-repellent/
Glasið er einungis 10 ml. Nægilegt er að láta nokkra dropa t.d. í spreybrúsa ásamt vatni og spreyja vökvanum síðan yfir sængurföt, opna glugga eða föt.